

Það eru svo viðburðarríkir dagar núna að það þýðir ekkert annað en að blogga. Við fórum af stað í morgun í garð hérna vestan við Shanghai. Við vorum í för með Lethe og Natasha dóttur hennar og Mihiri og Teoni dóttur hennar. Við byrjuðum á siglingu og Hugi var skipstjórinn að venju á okkar fleyi. Þetta var heilmikil sigling, nokkuð stórt vatn þarna og síki sem hægt var að sigla eftir og þurfti nokkra lagni hjá skipstjóranum þegar siglt var undir brýr.Á eftir fóru börnin nokkrar ferðir í tívolítækjum. Mömmurnar stýrðu ferðinni í klessubílunum því ekki náðu börnin niður. Mikið fjör hjá öllum.
Við borðuðum hádegismat saman og fórum svo hvert í sína áttina, rétt náðum heim áður en byrjaði að rigna.
Mér datt í hug að hringja í Sylvie, frönsku konuna sem við hittum á laugardaginn og bjóða henni í heimsókn með börnin Arthur 5 ára og Zoe 2 ára. Hugi var svo spenntur fyrir heimsókninni að það dugði ekkert minna en að baka köku og skreyta hana. Svo biðu þeir bræður úti á svölum eftir því að Arthur kæmi heim úr skólanum en svo heppilega vill til að þau búa í sama húsi og við, bara 32 hæðum ofar. Heimsóknin tókst bara mjög vel og strákarnir náðu vel saman, mikil læti og stofan í hálfgerðri rúst en allir voru glaðir. Við enduðum á því að fara niður á leikvöll sem er útbúinn hálfgerðum æfingahring fyrir börn og Hugi og Arthur tóku vel á því þar.
Huga fer fram í enskunni, wait for me sagði hann og ýmislegt sem ég hef ekki heyrt áður hjá honum.
Sylvie er mjög indæl, við tölum saman á frönsku og dettum stundum inn í ensku. Ekki slæmt ef ég get haldið frönskunni minni aðeins við þegar tengdamamma er svona víðs fjarri.
Við erum búin að ákveða heimsókn til systkinanna strax á morgun.
Dalla
1 comment:
sælar,
gaman að fylgjast með. Þeir eru nú meiri dúllurnar drengirnir þínir. Njótið ykkar í Kína....
kveðja Thelma í rigningunni í Mosó
Post a Comment