Í síðustu viku hittumst við hjá mér, Elsa og Anna til að baka kleinur. Eftir að við vorum búnar að ræða ástandið á Íslandi þangað til okkur varð heitt í hamsi tókum við til við baksturinn, Anna leiddi okkur amatörana í gegnum þetta, hefðum ekki klárað þetta án hennar.
Anna steikir
Nágrannabörnin fengu smakk eftir skóla, hérna er Karólína með Eyju sem var að klára kvöldgrautinn
Karólína er orðin mikil vinkona Eyju og lýsir því yfir hvað hún sé sæt þegar hún kemur í heimsókn
Tilefni kleinubaksturs var hið árlega foodfair þar sem foreldar selja mat frá sínu þjóðlandi á mikilli hátíð í skóla strákanna. Við Elsa vorum ekki með mikilmennskubrjálæði þetta árið og fengum afnot af borðshorni hjá Norðmönnum. Vorum að hugsa um það á tímabili að hætta við en settum undir okkur hausinn og mættum með okkar góðgæti.
Eyja á leið á foodfair
Hátíð í bæ og hoppukastalarnir komnir upp
Christina danska sá um danska borðið með löndum sínum
Við Elsa leggjum á borð
Elsa með flottar pönnukökur sem Árni bakaði að morgni dags
Svíarnir voru líka með pönnukökur en dáðust að bakstrinum og framsetnigunni hjá Elsu og Árna
Kleinur (twisted donuts) og pönnukökur
Litadýrð hjá Malasíu
Japanir alltaf huggulegir
49 þjóðir tóku þátt
Norðmenn stóðu við vöfflujárnið
Snafsinn ómissandi
Kleinusmakk
Tilvonandi viðskiptavinir
Alltaf skrítinn svipur við fyrsta bita
Lí framleiðir dýrindis grænmetismauk ofan í Eyju
Hún stækkar vel af því, orðin 9,2 kíló
Eyja 7 mánaða og Tiffany 17 mánaða með Lethe
Lethe öfundaðist mikið út í bumbu og handleggjafitu Eyju
Örn fær mömmuknús
Anna
Örn og Boggi
María gæðir sér á pönnuköku
Veislan búin
Umferð á heimleið
Komin í franska hverfið okkar þar sem tré standa við götur
Það hefur nú oft selst betur hjá okkur en ég held að framboðið af mat hafi verið of mikið þetta árið.
Sunnudagurinn fór svo í það að koma bræðrum í afmæli, reyndar vildi Stirnir ekki fara í eitt afmæli þegar hann mætti á staðinn. Hann fylgdi mér þá bara í Íslendingamálsverð í staðinn, þar hittumst við tæplega þrjátíu manns. Við erum orðin svo mörg að það er vel partíhæft.
Í gær var svo skoðun og bólusetning hjá Eyju. Hún er komin yfir 9 kíló sem er fínt en er ekki að lengjast mikið, hún var reyndar kreppt af gráti meðan var verið að mæla hana svo ég tek ekki alveg mark á mælingunni. Hún er komin með það mikið vit að nú grætur hún á hjúkrunarfræðinga og lækna. Læknirinn er enn að tala um höfuðstærðina þó búið sé að kíkja í höfuðið, þetta þreytir mig mikið. Næst ætla ég að taka Kjartan með svo hún geti séð höfuðið á honum.
Baráttukveðjur til vina og vandamanna, Dalla
2 comments:
Frábærar kleinur og pönnukökur. Það er engin ástæða til að vera með minnimáttarkennd, við Íslendingar erum alveg jafn stór og við vorum í raun og veru. Við bara virtumst vera stærri og flottari í smá stund en það var ofskynjun annarra.
Hehe, sammála!
Post a Comment