Wednesday, May 14, 2008

Í tilefni þriggja mánaða afmælis í dag er myndasyrpa frá deginum í boði hússins:



Eyja ábúðarfull á leið í hádegisverð



Jing keyrir okkur um á CCP drossíunni



Stirnir og Andrea, nágranni og mikil vinkona með Eyju. Þau Stirnir sitja stundum í faðmlögum og spila Nintendo. Andrea sagði mér það í dag að mamma hennar ætti von á barni líka, það ætti að koma um jólin. Spurning hvort Eyja hafi komið af stað frjósemissprengju, pabbi Andreu var nefnilega búinn að segja mér að Elin kona sín hefði sagt þegar hún sá fyrstu myndirnar af Eyju að hún væri líka til í að eiga lítið barn.



Hugi var ekki heima, hann fór heim með Hadley vinkonu sinni eftir skóla.



















1 comment:

Anonymous said...

Þú ert aldeilis dugleg í blogginu. Gaman að lesa.
Takk fyrir afmælisgjöfina, Boggi er alveg í skýjunum.
Hekla